 Andri fer í sólina á Spáni og nær vonandi að vinna nokkra leiki í leiðinni
| | 28. mars 2007 - SÁ skrifar
Andri valinn í U-21 landsliðiðAndri Snær Stefánsson, hinn eitilharði hornamaður, hefur verið valinn í lokahóp landsliðs Íslands skipað leikmönnum fæddum 1986 og síðar. Þessi landsliðshópur Íslands fer til Spánar og spilar í undankeppni fyrir HM núna um páskana. Liðið mun leika þrjá gríðarlega erfiða leiki eða við Austurríki, Spán og Sviss.
Aðspurður sagðist Andri vera spenntur fyrir þessu verkefni Íslands. Hann vildi meina að þrátt fyrir erfiðan riðil væri möguleikar Íslands þónokkrir og var hann bjartsýnn fyrir því að Ísland næði að standa sig vel í þessum leikjum. |