Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það hafa allaf verið hörkuleikir á milli Akureyrar og FH

21. september 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Risaleikur Akureyrar og FH á mánudaginn klukkan 19:00

Það má gera ráð fyrir hörkuleik á mánudagskvöldið þegar Akureyri tekur á móti FH í fyrsta leik N1 deildar karla þetta tímabilið. Undanfarin ár hafa þessi lið trúlega mæst oftast af öllum liðum deildarinnar og undantekningarlítið hafa leikir þeirra verið jafnir og spennandi.

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi beggja liða frá því í fyrra. Hjá Akureyri eru þær helstar að Sveinbjörn Pétursson, markvörður er farinn til EHV Aue í Þýskalandi, Hörður Fannar Sigþórsson leikur nú með Kyndil í Færeyjum auk þess sem Guðlaugur Arnarsson lagði skóna á hilluna. Aðrir leikmenn sem fóru eru Daníel Örn Einarsson sem fór til HK, Jón Heiðar Sigurðsson til Gróttu, Halldór Tryggvason til FH og Hlynur Elmar Matthíasson til Víkings.

Akureyri hefur hins vegar fengið tvo markverði, Jovan Kukobat frá Serbíu og Tomas Olason sem kemur frá Danmörku. Auk þess hefur liðið endurheimt Andra Snæ Stefánsson og Hrein Hauksson sem báðir komu reyndar lítillega við sögu síðasta vetur. Þar fyrir utan eru nokkrir gríðarlega öflugir strákar úr Íslandsmeistaraliði 2. flokks sem munu berjast um sæti í liðinu.


Leikmannahópur Akureyrar 2012-2013

FH hefur misst nokkra öfluga leikmenn ens og línumanninn Atla Rúnar Steinþórsson og markvörðinn Pálmar Pétursson en báðir eru hættir. Skyttan Örn Ingi Bjarkason er genginn til liðs við Aftureldingu og skyttan Hjalti Pálmason hefur tekið sér hlé frá boltanum.
FH hefur fengið þrjá leikmenn frá Fram, hornamanninn Einar Rafn Eiðsson, Jóhann Karl Reynisson og Arnar Birkir Hálfdánsson. Auk þess sem okkar maður Halldór Tryggvason er kominn á línuna hjá þeim eins og áður segir.

Í viðtali við Vikudag segir Heimir Örn Árnason, annar þjálfari Akureyrar að veturinn leggist vel í sig. „Það er alltaf sett stefnan á að vinna þá titla sem í boði eru, annars væri maður ekkert í þessu“, segir Heimir sem segist mjög sáttur við leikmannahópinn og að liðið sé klárt í slaginn.

Það er nokkuð ljóst að N1 deildin verður óvenju jöfn í vetur og því verður hver leikur geysilega mikilvægur. FH liðið er öflugt, því er spáð 2. sæti í deildinni þannig að nú dugar ekkert annað en að byrja af fullum krafti, jafnt leikmenn sem stuðningsmenn.


Frá leik liðanna í fyrravor, Geir Guðmundsson klínir boltanum upp í samskeytin

Það má búast við miklu fjölmenni í Höllinni og því hvetjum við áhorfendur til að mæta tímanlega og rétt að benda á að miðasalan gengur mun hraðar ef greitt er með peningum en að sjálfsögðu er einnig tekið á móti greiðslukortum.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson