 Bjarni er búinn að eiga magnað tímabil í vetur
| | 27. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarMorgunblaðið valdi Bjarna Fritzson í lið 20. umferðarinnarMorgunblaðið birtir í dag val sitt á liði 20. umferðar N1 deildar karla en blaðið hefur valið leikmenn hverra umferða. Að þessu sinni á Akureyri Handboltafélag einn fulltrúa í liðinu, Bjarni Fritzson er valinn í stöðu hægri hornamanns en þetta er í 11. sinn sem Bjarni er í liði umferðarinnar.
Að mati Morgunblaðsins er Jóhann Gunnar Einarsson, Fram leikmaður umferðarinnar og jafnframt hægri skytta umferðarinnar. Annars er lið 20. umferðar þannig skipað:
Markvörður: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum (2. skipti) Vinstra horn: Jóhann Jóhannsson, Afturelding (1. skipti) Vinstri skytta: Anton Rúnarsson, Val (6. skipti) Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson, HK (4. skipti) Leikstjórnandi: Rangar Jóhannsson, FH (2. skipti) Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram (3. skipti) Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri Handboltafélag (11. skipti)
Varnarmaður: Vilhelm Gauti Bergsveinsson, HK (3. skipti)
Heimasíðan óskar þeim öllum til hamingju með viðurkenninguna. |