Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Akureyringar voru full mistækir gegn Íslandsmeisturum Fram
2. apríl 2007 -
SÁ skrifar
Baráttan dugði ekki gegn Fram
Akureyri mætti Fram í gær í Safamýrinni. Með sigri á Haukum var liðið búið að slíta sig nokkuð frá botnbaráttunni og komið í séns að ná Deildarbikarssæti. Spilamennska Akureyrar í leiknum var einfaldlega of mistæk til að ná sigri og vann Fram 29-27 sigur.
Akureyri byrjaði í 3-2-1 vörn og byrjaði leikurinn þó nokkuð vel fyrir okkar menn. Akureyri komst í 4-5 og var vörnin að virka vel. Vörnin hélt áfram að virka ágætlega út hálfleikinn þó mismunandi varnarafbrigði væru notuð en það vantaði markvörsluna með. Einum fleiri komast Fram í 7-5 og svo 8-5 stuttu síðar. Jafnmargir komast Akureyringar þó aftur inn í leikinn og jafna 9-9. Í hálfleik var svo staðan 15-14 eftir að Framarar höfðu haft frumkvæðið út hálfleikinn.
Fram skorar fyrsta markið í seinni hálfleik, Akureyri jafnar svo og fær Rúnar svo tvær mínútur. Aftur gerist það eins og í fyrri hálfleik að Framarar valta einum fleiri yfir Akureyri og staðan allt í einu orðin 18-15. Jafn margir skora Framarar svo aftur og fara í 19-15. Fram hélt svo góðri forystu lengi vel og staðan 25-19 þegar um tíu mínútur voru eftir. Þá kemur Akureyri með lokakafla sem kom bara allt of seint. Þeir minnka muninn jafn og þétt og þegar tæpar tvær mínútur voru eftir minnkaði Magnús í 27-26. Það var bara því miður of seint því Fram vann að lokum 29-27 sigur.
Það munaði bara tveimur mörkum á liðunum í þessum leik en þessi tvö mörk er hægt að finna nær alls staðar í leik Akureyrar. Liðið leikur slakan sóknarleik lengi vel og t.d. allan seinni hálfleikinn en liðið skorar nær einungis úr hraðaupphlaupum og seinni bylgju í seinni hálfleik. Akureyri klikkar tveimur vítum og fjölmörgum dauðafærum. Markmenn liðsins vörðu aðeins örfá skot í fyrri hálfleik þó markvarsla Hreiðars hafi verið flott í seinni hálfleik. Þá var Fram að leysa stöðuna einum leikmanni fleiri miklu betur en Akureyri sem voru langt frá því að vera nógu sannfærandi í þeirri stöðu. Akureyri hreinlega bara klikkaði á of mörgum hlutum til að vinna í Safamýrinni í dag og gerði bara of mörg mistök en til að vinna jafn sterkt lið og Fram á þeirra heimavelli þarftu einfaldlega mjög öflugan leik.
Þrátt fyrir fjölmörg mistök var margt jákvætt í liði Akureyarar. Liðið náði barðist og var lengi vel inni í leiknum. Þessir kaflar manni færri gera liðinu bara afar erfitt fyrir en þar er liðið að tapa með 2-3 mörkum í hvort skipti. Akureyri þurfti því alltaf að elta og var oft við það að komast inn í leikinn en það má bara ekki klikka þetta mörgum dauðafærum.
Þrátt fyrir að ná ekki að sigra er Akureyri enn í góðum möguleika á að ná fjórða sætinu í dag þar sem Stjarnan náði ekki að vinna ÍR. Það eru svo fjögur stig í bæði Hauka og Fylki en þrjár umferðir eru eftir. Allt getur gerst en Akureyri hreinlega verður nú bara að stefna upp á við og á þetta fjórða sæti því liðið er nánast búið að tryggja sér sæti í deildinni að ári. Til þess að ná 4. sætinu þarf ekki mikið. Liðið sýndi flotta hluti í sókn, vörn, markvörslu, seinni bylgju og baráttu í dag. Vandamálið var bara að liðið náði ekki að sýna þessa hluti í einu nema kannski í restina og verður liðið að sýna betri heildarleik og ná fleiri hlutum inn í einu ætli þeir sér að vinna lið eins og Fylki sem eru næstu andstæðingar Akureyrar.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson