 Einar Logi kom eftir áramótin úr atvinnumennskunni í Þýskalandi og hefur nú unnið sín fyrstu stig með Akureyri Handboltafélagi
| | 19. mars 2007 - ÁS skrifar
Einar Logi: Þurfum að vinna í sókninniHeimasíðan ákvað eftir sigurleik Akureyrar á ÍR í gær að ræða við Einar Loga Friðjónsson. Einar sem kom til liðs við liðið eftir að hafa verið í atvinnumennsku í Þýskalandi var að vinna sín fyrstu stig með liðinu en eftir slæma byrjun á árinu 2007 er Einar fullviss um að liðið muni leika vel gegn Haukum á laugardaginn.
ÁS: Jæja Einar, þetta tókst og þetta voru gríðarlega mikilvæg stig Já, þetta voru mjög mikilvæg stig, loksins kom sigurleikur á árinu
ÁS: Og þetta voru þín fyrstu stig Einar Logi: Jú það er rétt, svolítill léttir!
ÁS: Búið að vera erfitt eftir áramót, væntanlega léttir að sigra núna Einar Logi: Já, þetta liggur núna bara upp á við, mjög mikilvægt að vinna þennan leik í dag og nú stefnum við ótrauðir á að vinna á laugardaginn.
ÁS: Hvernig líst þér á þann leik gegn Haukum? Einar Logi: Bara mjög vel, mér finnst að við eigum góðan séns á móti þeim. Ef við bætum það sem klikkaði í dag þá mun ganga vel á laugardaginn, sérstaklega ef ég bæti mig persónulega líka.
ÁS: Nú voruð þið að spila hörkuvörn í dag en sóknarleikurinn mistækur, þið farið væntanlega yfir hann á næstunni? Einar Logi: Jú við þurfum að fara að vinna í sókninni, vörnin er komin og við þurfum að taka sóknina í kjölfarið.
ÁS: Er búið að setja eitthvert markmið fyrir síðustu leiki vetrarins? Einar Logi: Við förum í alla leiki til að vinna og vonandi kemur það okkur ofar í töflunni.
Við þökkum Einari kærlega fyrir spjallið og minnum á sjónvarpsleik Hauka og Akureyrar á RÚV að Ásvöllum laugardaginn kemur klukkan 16:15. |