| Tími | Staða | Skýring |
|
|
| Góðan daginn! Það er HK sem byrjar með boltann.
|
| 00:01
|
| Leikurinn er hafinn
|
| 00:21
|
| Andri Snær brýtur á Ragnari Hjaltested og HK fær aukakast
|
| 00:39
|
| HK fær aftur aukakast
|
| 01:00
|
| Enn fær HK aukakast, þetta er orðin býsna löng sókn hjá þeim
|
| 01:11
|
| Ólafur Bjarki með hörkuskot í stöng en HK nær frákastinu
|
| 01:23
|
| Vörnin ver skot en HK ná boltanum aftur eftir mikið kapphlaup
|
| 01:29
|
| Dæmd leiktöf á HK
|
| 01:49
|
| Einar Logi með skot sem Egidijus Petkevicius ver og HK menn bruna í sókn
|
| 01:55
|
| Hörður Fannar brýtur á línumanni HK og þeir fá aukakast
|
| 02:20
|
| HK maður ryðst á vörnina en fær aukakast
|
| 02:39
| 1-0
| Andri Snær skorar fyrsta mark leiksins úr hraðri sókn
|
| 03:17
| 2-0
| Hörður Fannar skorar einnig úr hraðaupphlaupi eftir að HK hafði átt skot í stöng
|
| 03:35
|
| Sveinbjörn ver en HK fær aukakast
|
| 03:49
|
| Sveinbjörn ver frá Ólafi Bjarka og Akureyri í sókn
|
| 03:59
|
| Jónatan með glæsilega sendingu á Hörð Fannar sem grípur ekki og HK bruna í sókn
|
| 04:00
|
| Sveinbjörn ver meistaraleiga frá Tomas Eitutis en HK fær vítakast
|
| 04:32
| 2-1
| Gunnar Steinn Jónsson skorar úr vítinu, fyrsta mark HK
|
| 05:03
|
| Dæmdur tími á Jónatan, sem er einkennilegt þar sem Goran hafði verið hent í gólfið og því ekki hægt að gefa á hann
|
| 05:10
|
| HK menn bruna upp í hraðaupphlaup en Sveinbjörn ver frábærlega frá Ragnari Hjaltested í dauðafæri, Akureyri með boltann
|
| 05:15
| 3-1
| Goran Gusic skorar úr hægra horninu eftir hraða sókn
|
| 06:13
|
| HK fær aukakast, vörn Akureyrar er búin að standa vel fyrir sínu
|
| 06:22
| 3-2
| Brynjar Valsteinsson kemst þó inn úr vinstra horninu og minkar muninn fyrir HK
|
| 06:55
|
| Magnús fær aukakast
|
| 07:29
|
| Hörður Fannar frír á línunni en Egidijus Petkevicius ver frá honum og HK brunar í sókn
|
| 07:27
| 3-3
| Gunnar Steinn skorar fyrir HK og jafnar leikinn
|
| 08:00
|
| Einar Logi stekkur upp en skotið fer í stöng og HK nær boltanum
|
| 08:30
|
| HK fær aukakast, vörnin er ekkert á því að gefa færi á sér
|
| 08:49
|
| Enn fær HK aukakast, núna var brotið á risanum Sergey Petraytis
|
| 09:00
|
| Sveinbjörn ver tvívegis og Akureyri komið í sókn
|
| 09:15
| 4-3
| Einar Logi fintar sig í gegnum HK vörnina og skorar flott mark
|
| 09:44
| 4-4
| Ragnar Hjaltested prjónar sig skemmtilega í gegnum vörn Akureyrar og jafnar leikinn
|
| 10:25
|
| Sigurgeir Árni fær gult spjald fyrir brot á Andra Snæ
|
| 10:34
|
| Jónatan með fína sendingu á Magnús sem fær vítakast.
|
| 10:57
| 5-4
| Jónatan skorar úr vítinu
|
| 11:31
| 5-5
| Ólafur Bjarki jafnar fyrir HK með dúndurskoti
|
| 11:39
|
| Boltinn dæmdur af Akureyri, spurning hvort það var ólögleg blokkering eða hvað er ekki gott að segja um
|
| 11:55
|
| Jónatan brýtur snyrtilega og stöðvar hraðaupphlaup HK
|
| 12:13
|
| Sveinbjörn ver úr vinstra horninu og Akureyri komið í sókn
|
| 12:39
|
| Boltinn dæmdur af Akureyri
|
| 12:45
|
| Sveinbjörn nær að verja dauðafæri HK manna en þeir fá vítakast Sveinbjörn
|
|
|
| Einar Logi fær gult spjald í leiðinni
|
| 13:17
|
| Sveinbjörn ver vítið en HK menn ná frákastinu...
|
|
|
| ... en Sveinbjörn gerir sér lítið fyrir og ver og Akureyri með boltann
|
| 13:25
|
| Magnús stekkur upp en Egidijus Petkevicius ver. Ekkert dæmt þó að það sé greinilega brotið á Magga, HK í sókn
|
| 13:31
|
| Andri Snær fær brottvísun fyrir að draga Tomas Eitutis niður
|
| 13:49
| 5-6
| Brynjar Valsteinsson kemur HK yfir með marki úr vinstra horninu
|
| 14:09
|
| Heiðar Þór kemur inná í vinstra hornið
|
| 14:22
| 6-6
| Goran Gusic með sirkusmark úr hægra horninu eftir magnaða sendingu Jónatans
|
| 14:51
|
| Hörður Fannar með gults spjald
|
| 15:02
|
| HK menn skjóta framhjá
|
| 15:09
| 7-6
| Einar Logi sýnir kynþokkann, lyftir sér upp og skorar glæsimark
|
| 15:32
|
| Ragnar Hjaltested fer inn úr hægra horninu en Sveinbjörn étur hann og Akureyri fer í sókn
|
|
|
| Magnús reynir sendingu á Hörð Fannar er HK menn komast inn í hana og æða í sókn
|
| 15:47
|
| Sveinbjörn tekur enn eitt dauðafærið af línunni og Akureyri nær boltanum. Sveinbjörn er kominn með ein tólf skot varin og er með sannkallaðan stórleik
|
| 16:19
| 8-6
| Hörður Fannar skorar af línunni eftir snilldarsendingu Jónatans
|
| 16:55
|
| Einar Logi kemst inn í sendingu en HK menn fá ódýrt aukakast
|
| 17:05
|
| Ólafur Bjarki með skot sem Akureyrarvörnin tekur
|
| 17:09
| 9-6
| Einar Logi skorar úr hraðaupphlaupi eftir að Rúnar hafið slegið boltann fram á völlinn
|
| 17:19
|
| HK menn taka leikhlé
|
|
|
| Leikurinn hefst á ný, Andri Snær kemur aftur inn á
|
| 17:55
| 9-7
| HK menn ná að minnka muninn með marki úr vinstra horninu
|
| 18:07
| 10-7
| Jónatan er ekkert að tvínóna við hlutina og veður upp og skorar
|
| 18:45
|
| HK menn missa boltann afturfyrir
|
| 19:11
|
| Jónatan með sendingu inn á línu sem Höddi nær ekki og HK menn fá boltann
|
| 19:30
|
| Sigurgeir Árni keyrir inn í Akureyrarvörnina og fær aukakast, hann haltrar síðan af leikvelli
|
| 20:29
|
| Sveinbjörn ver af línunni en HK fær vítakast
|
| 20:50
|
| Ólafur Bjarki tekur vítið en skýtur framhjá
|
| 21:29
|
| Jónatan með enn eina snilldarsendinguna á Hörð Fannar en Björn Ingi sem er kominn í markið ver í innkast, þannig að Akureyri heldur boltanum
|
| 22:00
| 11-7
| Einar Logi skorar eftir magnað uppstökk
|
| 22:45
|
| HK menn skjóta framhjá en fá aukakast
|
| 23:00
| 11-8
| Ólafur Bjarki brýst í gegn og minnkar muninn fyrir HK
|
| 23:09
| 12-8
| Jónatan svarar að bragði með snöggu skoti fyrir utan
|
| 23:35
|
| HK menn kasta boltanum útaf
|
| 24:12
|
| Magnús með hörkuskot í þverslá og þaðan upp í rjáfur, HK fær boltann
|
| 24:29
| 12-9
| Tomas Eitutis skorar fyrir HK, hans fyrsta mark í leiknum
|
| 24:50
|
| Andri Snær fær gott færi í vinstra horninu en það er varið og HK komið í sókn
|
| 25:34
|
| HK menn með skot sem vörnin ver í hornkast
|
| 25:52
| 12-10
| Ólafur Bjarki minnkar muninn fyrir HK, hann er allt í öllu hjá þeim
|
| 25:27
|
| Einar Logi með skot sem er varið en Akureyri nær frákastinu
|
| 26:45
|
| Brotið á Eiríki Jónassyni og HK maður fær gult spjald
|
| 26:55
| 13-10
| Einar Logi með glæsimark úr langskoti
|
| 27:12
|
| HK fá aukakast
|
| 27:33
|
| Sveinbjörn ver frá Tomas Eitutis, Akureyri með boltann
|
| 28:07
|
| Sævar Árnason tekur leikhlé
|
|
|
| Leikurinn hefst að nýju
|
| 29:15
|
| Dæmd leiktöf á Akureyri
|
| 28:52
|
| Sveinbjörn ver úr vinstra horninu en HK fær ódýrt vítakast
|
| 29:15
|
| Gunnar Steinn tekur vítið en dúndrar framhjá, greinilega hræddur við Sveinbjörn í markinu.
|
| 29:51
|
| Einar Logi með skot sem er varið og HK komnir í sókn
|
| 29:58
|
| HK menn fá vítakast á lokasekúndum fyrri hálfleiks
|
| 30:00
| 13-11
| Ragnar Hjaltested skorar úr vítinu og þar með rennur fyrri hálfleikur út
|
|
|
| Mörk Akureyrar: Einar Logi 5, Jónatan 3, Hörður Fannar og Goran 2 mörk hvor og Andri Snær 1 mark
|
|
|
| Sveinbjörn hefur farið hamförum í markinu og er komin með 16 skot varin, þar af eitt vítakast
|
| 30:01
|
| Akureyri hefur síðari hálfleikinn
|
| 30:31
|
| Hörður Fannar með skot framhjá úr þröngu færi á línunni
|
| 31:02
|
| Sveinbjörn heldur uppteknum hætti og ver. HK menn fá hinsvegar innkast
|
| 31:29
| 13-12
| Sergey Petraytis finnur hinsvegar leið í mark Akureyrar af línunni
|
| 31:55
|
| Hörður Fannar fær aukakast eftir snilldarsendingu frá Jonna
|
|
|
| Sergey Petraytis fær brottvísun fyrir brotið
|
| 32:13
| 14-12
| Hörður Fannar svarar fyrir sig með fínu marki af línunni
|
| 32:34
|
| Ólafur Bjarki með skot sem Sveinbjörn ver en HK fær aukakast
|
| 32:51
|
| Sveinbjörn ver meistaralega frá Tomas Eitutis í hægra horninu, Akureyri í sókn
|
| 32:57
| 15-12
| Hörður Fannar skorar af línunni eftir sendingu frá Andra Snæ
|
| 33:33
|
| Hörður Fannar fær brottvísun fyrir litlar sakir
|
| 34:07
|
| HK menn með mislukkaða línusendingu og Akureyri með boltann
|
| 34:51
|
| Einar Logi fær aukakast, sóknin er dálítið vandræðaleg núna enda vantar mann í sóknina
|
| 35:05
|
| Jónatan með misheppnaða sendingu og boltinn útaf
|
| 35:15
|
| En HK menn henda boltanum líka útaf
|
| 36:07
|
| Hörður Fannar fær vítakast
|
| 36:21
| 16-12
| Jónatan öryggið uppmálað og skorar úr vítinu
|
| 36:58
| 16-13
| Sergey Petraytis skorar af línunni eftir gott spil HK manna
|
| 37:10
|
| Sergey Petraytis brýtur svo á Herði Fannari sem fær vítakast
|
| 37:14
| 17-13
| Jónatan heldur uppteknum hætti og skorar úr vítinu
|
| 37:44
|
| Rúnar fær brottvísun fyrir að slæma hendi í andlit Ragnars Hjaltested
|
| 38:00
|
| Sergey Petraytis dauðafrír á línunni en Einar Logi slær boltann úr höndum hans þannig að HK fær vítakast
|
| 38:16
| 17-14
| Ragnar Hjaltested skorar úr vítinu
|
| 38:55
|
| Einar Logi með skot sem er varið og í kjölfarið er brotið á Herði Fannari
|
| 39:22
|
| Magnús með slaka sendingu sem HK menn komast inn í
|
|
|
| HK menn bruna upp í hraðaupphlaup en Andri Snær kastar sér á boltann á síðustu stundu en einhverra hluta vegna fær HK aukakast
|
| 39:51
|
| Sveinbjörn ver og Akureyri kemst í hraðaupphlaup
|
| 39:55
| 18-14
| Rúnar geysist upp allan völlinn og skorar
|
|
|
| Einn HK manna fær brottvísun fyrir að brjóta á Rúnari í skotinu
|
| 40:37
|
| Ólafur Bjarki skýtur framhjá marki Akureyrar
|
| 30:47
|
| Magnús með skot sem er varið og HK menn fá boltann
|
| 40:59
| 18-15
| Ragnar Hjaltested skorar úr hægra horninu fyrir HK
|
| 41:22
| 19-15
| Magnús með dúndurmark fyrir utan
|
| 41:50
| 19-16
| Tomas Eitutis fintar sig í gegn og minnkar muninn fyrir HK
|
| 42:10
| 20-16
| Hörður Fannar skorar af línunni eftir frábæra sendingu frá Magnúsi
|
| 42:39
| 20-17
| Sergey Petraytis skorar seiglumark af línunni fyrir HK
|
| 43:00
| 21-17
| Magnús með góða gabbhreyfingu og kemst í gegnum HK vörnina og skorar
|
| 43:58
|
| Sveinbjörn ver frá Tomas Eitutis og Akureyri fær boltann
|
| 44:10
|
| Stjakað við Rúnari í sókninni, aukakast
|
| 34:33
|
| Varið frá Jónatan eftir glæsileg sirkustilþrif
|
| 45:15
|
| Misheppnuð sending hjá HK og Akureyri fær boltann
|
| 45:49
| 22-17
| Einar Logi fer inn úr hægra horninu og skorar gott mark
|
| 46:32
|
| Sveinbjörn ver en HK fær aukakast
|
| 46:55
| 22-18
| Ólafur Bjarki skorar með lúmsku skoti
|
| 47:08
|
| Hörður Fannar með skot af línunni sem er varið, HK með boltann
|
| 47:16
|
| Sveinbjörn ver og Akureyri í hraðaupphlaup
|
| 47:20
|
| En Andri Snær lætur verja frá sér úr opnu færi
|
| 48:25
|
| Sergey Petraytis fær vítakast fyrir HK
|
| 48:32
| 22-19
| Ragnar Hjaltested skorar
|
| 48:58
|
| Hörður Fannar lætur Björn Inga verja frá sér af línunni, Björn er búinn að eiga stórleik í HK markinu í síðari hálfleik
|
|
|
| Bjarki Már kominn í dauðafæri á línunni en skýtur framhjá, Akureyri í sókn
|
| 49:45
|
| Einar Logi fær aukakast
|
| 49:55
|
| Magnús með skot framhjá
|
| 50:12
| 22-20
| Ólafur Bjarki brýst í gegn og minnkar muninn fyrir HK
|
|
|
| Höddi fær brottvísun fyrir að brjóta á Ólafi
|
| 50:59
|
| Rúnar með skot sem er varið, HK fær boltann
|
| 51:03
|
| Andri Snær vinnur boltann í vörninni, Akureyri í sókn
|
| 51:27
|
| Akureyri missir boltann en HK missa hann jafnharðan aftur
|
| 51:53
|
| Goran Gusic með skot sem er varið, Sveinbjörn nær boltanum áður en HK menn komast í hraðaupphlaup
|
| 52:27
|
| Andri Snær fær vítakast í vinstra horninu
|
| 52:35
| 23-20
| Jónatan klikkar ekki á vítinu og eykur muninn á ný
|
| 53:10
|
| Andri Snær stoppar Ragnar Hjaltested sem fær aukakast
|
| 53:25
|
| HK menn skjóta yfir
|
| 54:25
|
| Jónatan með sendingu inn á línuna sem gengur ekki upp og HK fær boltann
|
| 54:37
|
| HK fær aukakast
|
| 54:50
| 23-21
| Tomas Eitutis skorar fyrir HK með langskoti
|
| 55:35
|
| Dæmdur ruðningur á Magnús
|
| 55:43
|
| Sveinbjörn ver frá Tomas Eitutis
|
| 55:59
|
| Einar Logi skorar en það er dæmt af og dæmdur ruðingur á Einar
|
| 56:03
|
| Sveinbjörn ver en HK menn fá aukakast
|
| 56:30
|
| HK fær vítakast
|
|
|
| Arnar kemur í markið. Ragnar Hjaltested blöffar Arnar upp úr skónum en skýtur svo yfir úr vítinu
|
|
|
| Af einhverjum undarlegum ástæðum fá þeir að endurtaka vítið?
|
|
| 23-22
| Sveinbjörn kemur í markið en nú skorar Ragnar
|
| 57:29
| 24-22
| Jónatan fintar sig í gegnum HK vörnina og skorar gott mark
|
| 57:59
| 24-23
| HK menn minnka muninn
|
| 58:40
|
| Heiðar Þór fær vítakast í vinstra horninu
|
|
| 25-23
| Jónatan skorar að sjálfsögðu úr vítinu
|
| 59:14
| 25-24
| HK menn gefast ekki upp og skora
|
| 59:32
| 26-24
| Jónatan dauðafrír á línunni og innsiglar væntanlega sigur Akureyrar
|
| 59:43
| 26-25
| Ólafur Bjarki ekki af baki dottinn og skorar glæsilegt mark fyrir utan
|
| 60:00
|
| Leiktíminn rennur út, sætur og sanngjarn sigur staðreynd
|
|
|
| Mörk Akureyrar: Jónatan Þór Magnússon 9 (5 úr vítum), Einar Logi Friðjónsson 6, Hörður Fannar Sigþórsson 5, Magnús Stefánsson 2, Goran Gusic 2, Andri Snær Stefánsson 1 og Rúnar Sigtryggsson 1
|
|
|
| Sveinbjörn var klárlega maður vallarins með 25 skot varin og þar af eitt vítakast
|
|
|
| Við þökkum fyrir okkur í dag
|